FYRIR FASTEIGNASÖLUR

Rétti kaupandinn.
Rétta eignin.

Haltu utan um kaupóskir, finndu samsvaranir við eignir og sjáðu strax hverju þarf að fylgja eftir.

Haltu utan um fasteignatengd verkefni frá degi til dags. Láttu gesti skrá sig beint á gestalista í opnu húsi með QR-kóða.

Kaupandi.is er í þróun. Prófaðu vinnuferlið í gagnvirku sýnishorni.

Kaupandi.isDæmi úr kerfinu

ÞARF AÐ SINNA

Lindarbraut 12

201 Kópavogur · 4 herbergi

Nýtt í dag
María og Ólafur75–100 m.kr. · 3+ svefnherbergi
Ókynnt
Baldur Kristinsson65–90 m.kr. · 2+ svefnherbergi
Email sent
Skoða samsvaranir í sýnishorni

Frá fyrstu kaupósk
að næsta samtali.

Óskir kaupenda, eignir og eftirfylgni í einu vinnuferli — fyrir fasteignasalann og teymið.

ALLT Á SÍNUM STAÐ

Gerðu meira úr áhuganum
sem þegar er til staðar.

Minni handvirk leit, skjótari viðbrögð og skýr eftirfylgni. Sjálfvirk eignavöktun og email-tilkynningar hér að neðan eru fyrirhugaðar í framleiðsluútgáfunni.

01

Finndu kaupendur án handvirkrar leitar

Skráðu kaupósk með svæði, tegund, verðbili og herbergjum. Kerfið mun bera kaupóskir sjálfkrafa saman við eignir á vefsíðu fasteignasölunnar og finna kaupendur sem passa við nýjar eignir.

02

Fáðu tilkynningu þegar ný samsvörun finnst

Veldu að fá email þegar eign passar við kaupósk sem þú heldur utan um. Tengill leiðir þig beint á samsvörunina, þar sem þú sérð hvað hefur verið kynnt og hvað þarf að sinna.

03

Byrjaðu daginn með skýrt yfirlit

Skráðu samskipti, næsta skref og áminningu. Stilltu hvort áminningar berist á emaili, til dæmis sem yfirlit yfir áminningar dagsins. Sjáðu við hvern þarf að hafa samband og vegna hvers.

04

Gerðu meira úr hverju opnu húsi

Gestir skrá sig með QR-kóða og óstaðfest kaupósk verður til sem þú ferð yfir og staðfestir. Þótt gesturinn kaupi ekki þessa eign getur næsta eign verið sú rétta. Gestalisti, kaupóskir og eftirfylgni varðveitast þegar opnu húsinu er lokið.

EINFALT VINNUFERLI

Áhuginn á einni eign
getur leitt að annarri.

Gestur í opnu húsi eða kaupandi sem fær ekki eignina þarf ekki að hverfa úr myndinni. Kaupóskin heldur áfram og nýtist þegar næsta eign kemur fram.

Prófa kerfið

Kaupóskin heldur áfram

Varðveittu leitarskilyrði, samskiptaferil og næsta skref á einum stað. Áhugi úr opnu húsi eða tilboði sem gekk ekki eftir getur orðið upphafið að næstu sölu.

FYRIR FASTEIGNASÖLUNA

Eitt kerfi.
Skýr ábyrgð.

Fyrirhuguð framleiðsluútgáfa gefur stjórnanda yfirsýn yfir fasteignasöluna og hverjum fasteignasala aðgang að sínum málum.

Sérstakar stillingar fyrir hverja sölu halda utan um starfsfólk, úthlutun kaupóska, eftirfylgni og fyrirtækjaupplýsingar.

Sýnishornið notar tilbúin gögn. Innskráning, varanleg vistun, gestaskráning úr síma og eignainnflutningur, sjálfvirk eignavöktun og email-tilkynningar eru í undirbúningi.

KYNNTU ÞÉR KAUPANDI.IS

Hvernig gæti þetta nýst
þinni fasteignasölu?

Óskaðu eftir kynningu eða skoðaðu sýnishornið á meðan kerfið er í þróun.

Opna gagnvirkt sýnishorn

Upplýsingarnar eru notaðar til að svara beiðni þinni um kynningu.